Bátadagar á Breiðafirði verða 2.-3. júlí
Að þessu sinni verður tilhögun Bátadaga þannig, að laugardaginn 2. júlí verður siglt bæði frá Reykhólum og frá Stykkishólmi í Rauðseyjar og Rúfeyjar. Sunnudaginn 3. júlí er ráðgert að sigla í Akureyjar og einnig verður sýningin á Reykhólum opin fyrir þátttakendur.
Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð. Eyjarnar verða skoðaðar í fylgd manna sem þekkja þær vel og lýsa staðháttum og sögu þeirra.
Á meðfylgjandi yfirlitsmynd má sjá fyrirhugaðar siglingaleiðir.
Allir súðbyrðingar eru velkomnir og vilja neðantaldir hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er bæði á Reykhólum og í Stykkishólmi.
Frekari upplýsingar veita:
- Hafliði Aðalsteinsson, haflidia@centrum.is, s. 898 3839
- Hjalti Hafþórsson, artser@simnet.is, s. 861 3629
- Sigurður Bergsveinsson, sberg@isholf.is, s. 893 9787
Sjá einnig:
04.06.2011 Opna húsið á Reykhólum: Á annað hundrað gestir (Bátavernd og hlunnindanytjar)