26. maí 2010 |
Bátadagar á Reykhólum fyrstu helgina í júlí
Bátadagar á Reykhólum verða í sumar haldnir þriðja árið í röð. Að sögn Aðalsteins Valdimarssonar, bátasmiðs og umsjónarmanns Bátasafns Breiðfirðinga á Reykhólum, eru þegar farnar að berast fyrirspurnir um tímasetningu þeirra. Hann segir að búið sé að ákveða að þeir verði fyrstu helgina í júlímánuði (3.-4. júlí). Verði veður hins vegar of óhagstætt muni þeir haldnir næstu helgi á eftir.
Sjá einnig:
18.07.2009 Þátttakan í Bátadögum 2009 kom mjög á óvart