30. júní 2011 |
Bátadagarnir breiðfirsku um helgina
Félag áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar gengst núna um helgina fyrir hinni árlegu siglingu súðbyrtra trébáta á Breiðafirði. Félagið hefur súðbyrðinginn í öndvegi og vinnur jafnt að verndun hans og kynningu. Á laugardag er áætlað að sigla bæði frá Reykhólum og frá Stykkishólmi í Rauðseyjar og Rúfeyjar en á sunnudag er ráðgert að sigla í Akureyjar. Hafa skal þó í huga hið fornkveðna: Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða.
Nánar hér:
Vefur Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum
11.06.2011 Bátadagar á Breiðafirði verða 2.-3. júlí