Bátasafn Breiðafjarðar og Ólafsdalsfélagið fá milljón
Melrakkasetur Íslands í Súðavík fær styrk til að setja upp sýningu um refaveiðimenn, Félag um Snjáfjallasetur á Snæfjallaströnd við Djúp fær styrk til að setja upp sýningar um Drangajökul, Háskóli Íslands vegna verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, en því er ætlað að vernda menningarverðmæti sem komið hafa í ljós í Vatnsfirði við Djúp, og Sjóminjasafnið Ósvör í Bolungarvík til að gera skinnklæði eins og notuð voru á áraskipum.
Alls bárust Þjóðhátíðarsjóði að þessu sinni 259 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 350 milljónir króna. Úthlutað var að 65 styrkjum að fjárhæð samtals um 34 milljónir króna. Málvísindastofnun Háskóla Íslands fékk hæsta styrkinn, eina og hálfa milljón, en síðan komu sex verkefni sem hlutu eina milljón króna hvert, þar á meðal Bátasafn Breiðafjarðar og Ólafsdalsfélagið.
Sjá einnig:
Ólafsdalshátíð markar upphafið á endurreisn staðarins
Reykhólahreppur meðal stofnenda Ólafsdalsfélagsins
Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum
Vefur Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum