Tenglar

14. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is

Bergsveinn og Geirmundur í Tjarnarlundi

Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður flytur erindi um landnámsmanninn Geirmund heljarskinn og bók sína Den svarte vikingen í Tjarnarlundi í Saurbæ kl. 20 á miðvikudagskvöld, 16. apríl. Geirmundur var konungssonur frá Rogalandi í Noregi, fór í víking til Írlands og Bjarmalands (Norður-Rússlands) og endaði ævina hér á Skarðsströndinni. Áralangar rannsóknir liggja að baki bókinni og gengur sagnfræði hennar að hluta þvert á viðurkenndar hugmyndir um landnám Íslands. Bókin Den svarte vikingen var tilnefnd í flokki fræðirita til Brage-verðlaunanna í bókmenntum, hinna virtustu sem veitt eru í Noregi.

 

Bergsveinn Birgisson er doktor í norrænum fræðum frá Björgvinjarháskóla og starfar þar sem kennari. Eftir hann hafa komið út ljóðabækurnar Íslendingurinn og Innrás liljanna og skáldsögurnar Landslag er aldrei asnalegt, Handbók um hugarfar kúa og Svar við bréfi Helgu, en fyrir þá síðastnefndu var hann tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

 

Aðgangseyrir er enginn, en Þaulsetur sf., sem stendur að þessum viðburði í Tjarnarlundi, mælir með því að gestir komi með 500 krónur fyrir kaffibolla.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31