13. ágúst 2008 |
Bílamergð við Staðarhöfn á Reykjanesi
Samtals hátt í sextíu manns fóru með Birni Samúelssyni á Reykhólum (Eyjasiglingu) út í Skáleyjar og Flatey á laugardaginn eða í þremur ferðum með fullsetinn bát. Siglt er úr höfninni á Stað á Reykjanesi, nokkuð utan við Reykhóla. Í vor og sumar hafa miklar umbætur verið gerðar þar í höfninni, sem m.a. auðvelda fólki mjög að komast að og frá borði. Björn hefur siglt með fólk út í Breiðafjarðareyjar allt frá 2003 og hefur farþegum hans fjölgað ár frá ári. Mesti munurinn er þó á þessu ári og fyrir nokkrum vikum var farþegafjöldinn í sumar orðinn meiri en allt tímabilið í fyrra.
Á meðfylgjandi mynd sést bílamergðin við Staðarhöfn á laugardaginn.