13. júní 2009 |
Biskupsmessa og kirkjukaffi á Reykhólum
Vísitasíu biskups Íslands í Vestfjarðaprófastsdæmi og þá jafnframt í Reykhólaprestakalli lýkur á morgun með messu í kirkjunni í Flatey. Í dag kl. 14 syngur hann messu í kirkjunni á Skálmarnesmúla í Múlasveit en í kvöld predikar hann við messu í Reykhólakirkju sem hefst kl. 20. Sóknarpresturinn hvetur mömmur og pabba, ömmur og afa til að koma í kirkju með börnin og barnabörnin og eiga þar góða stund saman. Að lokinni guðsþjónustu verður kirkjukaffi í Reykhólaskóla.
Sjá einnig:
04.06.2009 Biskup Íslands vísiterar Reykhólaprestakall