Bjarkalundur-Skálanes: Opinn fundur á Reykhólum
Vegagerðin mun núna á þriðjudaginn, 8. nóvember, halda á Reykhólum kynningarfund um mat á umhverfisáhrifum vegna lagningar nýs 19,9-22 km vegar milli Bjarkalundar og Skálaness. Fundurinn verður í Reykhólaskóla kl. 17-19 og öllum opinn. Tillaga að framkvæmdinni og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar til 8. desember á skrifstofu Reykhólahrepps við Maríutröð á Reykhólum, í Bjarkalundi, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Hana er líka að finna hér á vef Vegagerðarinnar.
Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. desember 2016 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, eða í tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Frummatsskýrsla til umsagnar og athugasemdagerðar (okt. 2016).
Mælt með Teigsskógarleið, jarðgöng ekki á dagskrá (okt. 2016).