Tenglar

15. júní 2009 |

Bjarni Ómar og hljómplatan Fyrirheit í Skriðulandi

Bjarni Ómar Haraldsson.
Bjarni Ómar Haraldsson.
Bjarni Ómar Haraldsson, tónlistarmaður og deildarstjóri Tónskólans á Hólmavík, heldur ásamt Stefáni Steinari Jónssyni píanóleikara tónleika í Skriðulandi í Saurbæ þriðjudagskvöldið 16. júní og hefjast þeir kl. 20.30. Þar flytja þeir lögin sem hljómplatan Fyrirheit hefur að geyma, í þægilegum útsetningum fyrir píanó, kassagítar og söng, og rekja tilurð texta og laga ásamt því segja frá því sem kemur upp í hugann. Frítt er á tónleikana en að þeim loknum mun Bjarni selja og árita diskinn fyrir áhugasama. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Vestfjarða.

 

Hljómplatan Fyrirheit kom út á liðnu hausti. Bjarni Ómar er lagahöfundur og aðalflytjandi og jafnframt útgefandi. Þetta er önnur sólóplata Bjarna en árið 1998 sendi hann frá sér plötuna Annað líf. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem poppplata er gefin út á Ströndum þrátt fyrir mjög fjölbreytt menningarlíf í héraðinu um árabil.

 

Frá því að diskurinn kom út hefur Bjarni farið um ásamt Stefáni Steinari Jónssyni píanóleikara og haldið tónleika víða um land til að fylgja honum eftir, m.a. á Ströndum og um Vestfirði, í Reykjavík og á Norðurlandi. Nú er komið að því að þeir félagar heimsæki nágranna sína sunnan heiða þegar þeir spila í Skriðulandi.

 

Nánar um hljómdiskinn Fyrirheit

 

Hitann og þungann af öllum hljóðfæraleik á diskinum ber Borgar Þórarinsson, en aðrir sem koma við sögu auk Borgars og Bjarna eru trommuleikarinn Haukur Pálmason og Svavar Viðar Hafþórsson. Um bakraddir og dúetta sjá Strandamennirnir Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir, sem er dóttir Bjarna Ómars, Sigurrós Þórðardóttir, Arnar S. Jónsson, María Mjöll Guðmundsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir og Stefán S. Jónsson.

 

Diskurinn hefur að geyma 12 lög og eru flestar lagasmíðarnar melódískt popp í rólegri kantinum. Ástin og samkipti kynjanna skipa stórt hlutverk í textagerð. Bjarni Ómar á sex texta á diskinum en auk hans eru tveir aðrir textahöfundar frá Hólmavík, þau Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir kennari og Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjárseturs á Ströndum. Í textagerðinni koma einnig við sögu Jónas Friðrik frá Raufarhöfn, Oddur Bjarni Þorkelsson úr Ljótu hálfvitunum, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir á Skagaströnd og Helgi Jónsson, sem meðal annars var hljómborðsleikari í hljómsveitinni Írafári.

 

Upptökur fóru fram í júní til september á síðasta ári. Tekið var upp í stúdíó Hljóðhimnum í Hornslet í Danmörku og Hljóðlist á Akureyri. Þá var sumarbústaðnum Brekkuseli á Ströndum breytt í stúdíó í eina viku í júlí þar sem allar bakraddir voru teknar upp. Eftirvinnsla og mastering fór fram stúdíó Hljóðhimnum. Upptökustjórn og útsetningar voru í höndum Borgars Þórarinssonar, en hann var einnig upptökumaður og sá um masteringu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31