2. nóvember 2015 |
Björgunarsveitin Heimamenn: Unglingadeild stofnuð
Stofnfundur unglingadeildar björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi verður kl. 18.30 í kvöld, mánudag, í bækistöð sveitarinnar að Suðurbraut 5. Starfið er ætlað ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára og verður í umsjá Jóhönnu Aspar Einarsdóttur og Sigrúnar Kristjánsdóttur.
► Meira hér á vefsíðu Heimamanna