Tenglar

2. apríl 2011 |

Björn Jónsson ritstjóri og ráðherra frá Djúpadal

F. í Djúpadal í Gufudalssveit 8. okt. 1846, d. 24. nóv. 1912. For.: Jón Jónsson (f. 2. okt. 1818, d. 13. ágúst 1863) bóndi þar og k. h. Sigríður Jónsdóttir (f. 14. júlí 1824, d. 22. maí 1864) húsmóðir. Faðir Sveins Björnssonar alþm. og forseta Íslands. K. (10. des. 1874) Elísabet Guðný Sveinsdóttir (f. 17. júlí 1839, d. 11. júní 1922). For.: Sveinn Níelsson alþm. og 2. k. h. Guðrún Jónsdóttir. (Ættarskrá VII.) Börn: Guðrún (1876), Sigríður (1879), Sveinn (1881), Ólafur (1884).

 

Stúdentspróf Lsk. 1869. Við laganám og ritstörf í Kaupmannahöfn 1871-1874 og 1878-1883, en lauk ekki lagaprófi.

 

Heimiliskennari hjá Brynjólfi Benedictsen kaupmanni í Flatey 1869-1871. Rak prentsmiðju ásamt blaða- og bókaútgáfu og bókaverslun í Reykjavík. Stofnaði blaðið Ísafold 1874 og var ritstjóri þess að kalla mátti óslitið til 1909. Skip. ráðherra Íslands 31. mars 1909, lausn 14. mars 1911.

 

Í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar 1885-1887 og 1907-1909. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1885-1891.

 

Alþm. Strand. 1878-1880, alþm. Barð. 1908-1912 (Sjálfstfl. eldri).

Ráðherra Íslands 1909-1911.

Forseti Sþ. 1909.

 

Samdi Íslenska stafsetningarorðabók sem kom út í fjórum útgáfum (1900-1921) og íslenskaði skáldsögur o.fl.

Ritstjóri: Skírnir (1873-1874). Ísafold (1874-1909). Alþingistíðindi (1879 og 1883-1895). Iðunn (1884-1889). Þingvallafundartíðindi (1888). The Tourist in Iceland (1892). Íslenski Good-Templar (1892-1893). Heimilisblaðið (1894-1896). Sunnanfari (1900-1903). Magni (1912).

 
- Alþingismannatal.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31