28. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Blaðið Þorri og myndbandið Tveir vinir
Myndbandið Tveir vinir sem var frumsýnt á þorrablótinu á Reykhólum um helgina gerði mikla lukku. Það er tvær og hálf mínúta á lengd og má sjá það hér á YouTube. Þorramaturinn hjá Lionsfólki virðist hafa hlotið einróma lof nema kannski harðfiskurinn sem einhverjum þótti víst mislukkaður. Fjórar konur í þorrablótsnefndinni fengu draum sinn uppfylltan og voru flugfreyjur eitt kvöld.
Tvennt fengu þorrablótsgestir í hendur við komuna: Brennivínsstaup frá Þörungaverksmiðjunni og blaðið Þorra frá blótsnefndinni. Blaðið má lesa hér (pdf).
Þorrablótsnefndin vill koma á framfæri þakklæti til allra sem aðstoðuðu við að gera blótið mögulegt.
Sjá einnig:
► Myndir frá þorrablótinu 2014