1. október 2011 |
Blak á Reykhólum - karlar líka velkomnir!
Blakæfingar eru í íþróttahúsinu á Reykhólum öll miðvikudagskvöld í vetur, fjórða veturinn í röð, og hefjast kl. 20. Þangað eru allir velkomnir. Framan af var blakið á Reykhólum einokað af konum en karlar eru farnir að koma líka og fer fjölgandi. Jafnframt er vonast eftir ennþá fleiri konum í hópinn. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Herdísi Ernu Matthíasdóttur.
Sjá einnig:
Fleiri konur vantar í blakið á Reykhólum