30. ágúst 2012 |
Blakæfingarnar að hefjast á Reykhólum
Blakæfingar verða í íþróttahúsinu á Reykhólum í vetur, fimmta veturinn í röð. Karlar og konur eru hvött til að mæta kát og hress. Fyrsta æfingin verður kl. 20 á miðvikudagskvöld, 5. september, og síðan verða þær í hverri viku á sama tíma. Til að fá nánari upplýsingar má hafa samband við Herdísi Ernu Matthíasdóttur.