1. desember 2016 | Umsjón
Blóðsykursmæling fyrir alla
Mynd: NetDoktor.de.
Á þriðjudaginn, 6. desember kl. 15-17, verður Helga Garðarsdóttir hjúkrunarforstjóri með fría blóðsykursmælingu í boði Lions í borðsal Reykhólaskóla. Jólavörur Lionsklúbbsins verða til sölu á sama stað og tíma.
Mætum öll!
Lionsklúbbur Búðardals, Reykhóladeild.
Jóhannes, fstudagur 02 desember kl: 21:11
Mikilvægara að fólk láti mæla hjá sér langtímablóðsykurinn sem mældur er með blóðprufu. Helstu einkenni of hás blóðsykurs eru;
Þorsti, tíð þvaglát, þreyta, lystarleysi og þyngdartap, kláði umhverfis kynfæri,sýkingar í húð og slímhúðum.
Eðlilegar mælingar ættu að sýna;
Fastandi og fyrir máltíðir: 4-7 Tveimur tímum eftir máltíðir: Minna en 10