2. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is
Boðað til aðalfundar Búnaðarfélags Reykhólahrepps
Aðalfundur Búnaðarfélags Reykhólahrepps verður haldinn í matsal Reykhólaskóla fimmtudaginn 10. apríl og hefst kl. 20. Eftir fundinn mun Guðmundur Hallgrímsson halda erindi um öryggi og brunavarnir í útihúsum. Dagskráin að öðru leyti:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Kosning fulltrúa á aðalfund Búnaðarsambands Vestfjarða.
- Önnur mál.
Hvetjum alla til að mæta, taka þátt í fundi og hlusta á fróðlegan fyrirlestur.
- Stjórnin.