9. júní 2016 |
Boðað til aðalsafnaðarfundar Reykhólasóknar
Aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar verður haldinn í Reykhólakirkju á þriðjudag, 14. júní, og hefst kl. 20.
Dagskrá:
- Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
- Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga sóknar og kirkjugarðs fyrir síðasta ár.
- Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi.
- Ákvarðanir um meiriháttar framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar.
- Kosning sóknarnefndarmanna og jafnmargra varamanna til 4ra ára.
- Kosning tveggja skoðunarmanna eða endurskoðanda sóknar og kirkjugarðs ásamt varamönnum þeirra til árs í senn.
- Kosning í aðrar nefndir og ráð.
- Önnur mál.