9. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Bók um örnefni í Flatey á Breiðafirði
Ævar Petersen, sá ágæti fuglasérfræðingur og velunnari Flateyjar, hefur til margra ára safnað örnefnum í Flatey samhliða því að huga að fuglalífi. Hann hefur nú tekið saman stórmerkilega bók um þetta annað áhugamál sitt, sem vonast er til að komi út fljótlega, segir á vef Framfarafélags Flateyjar.