8. júní 2017 | Sveinn Ragnarsson
Bókakynning í Nesheimum á sunnudag
Á sunnudaginn 11. júní kl. 14:00, ætlar Aðalheiður Hallgrímsdóttir frá Mýrartungu 2, ásamt fjölskyldu sinni að hafa kynningu í Króksfjarðarnesi -hjá Össu-, á nýútkominni ljóðabók foreldra Heiðu, Hallgríms Ólafssonar og Helgu Halldórsdóttur frá Dagverðará. En þau dvöldu langdvölum hjá þeim Manna í Reykhólasveitinni eftir að þau hættu búskap.
Þau munum kynna bókina með upplestri, frásögnum og söng.
Gefum Heiðu orðið; „Það væri ljúft ef einhverjir af gömlu sveitungunum okkar og aðrir á svæðinu sæu sér fært að mæta. Allir hjartanlega velkomnir, hlakka til að sjá ykkur“.
Ef einhver hefur áhuga á að kaupa bókina kostar hún 3700 kr.