2. mars 2012 |
Bókasafnið - fyrsti laugardagur í mars
Harpa bókavörður minnir á, að fyrsti laugardagur mánaðarins er á morgun, en þá er bókasafn héraðsins í Reykhólaskóla opið kl. 10-12 fyrir hádegi. Hún segir að eitthvað skemmtilegt verði sett í tækið strax um tíuleytið og síðan klukkan ellefu er eins og venjulega lesið fyrir krakkana.