29. september 2016 | Umsjón
Bókasafnið: Afgreiðslutímar í vetur
Sú viðbót verður við afgreiðslutíma á Héraðsbókasafni Reykhólahrepps frá því sem var síðasta vetur, að núna í vetur verður það opið fyrsta miðvikudagskvöld í hverjum mánuði kl. 20-21, í fyrsta skipti næsta miðvikudag, 5. október. Að öðru leyti eru afgreiðslutímar núna í vetur þessir (þeir sömu og í fyrra):
- Mánudaga milli kl. 15 og 17.
- Þriðjudaga milli kl. 9.10 og 9.50.
- Miðvikudaga milli kl. 10 og 10.40.
Bókavörður er sem áður Herdís Erna Matthíasdóttir. Safnið er til húsa í gamla leikfimisalnum í Reykhólaskóla.
Hlökkum til að sjá þig á bókasafninu okkar, segir í tilkynningu.