21. mars 2012 |
Bókasafnið: Margar hendur vinna létt verk
Sjálfboðaliðastund verður á Héraðsbókasafninu á Reykhólum kl. 16-18 á morgun, fimmtudag. Allar hjálparhendur velkomnar og vel þegnar og alls ekki nauðsynlegt að vera allan tímann. Heitt á könnunni og kex í boði. „Hlakka til að sjá sem flesta,“ segir Harpa bókavörður, sem gefur nánari upplýsingar í síma 894 1011.
Eftir flutning í vetur er bókasafnið til húsa í gamla leikfimisalnum í Reykhólaskóla.
► Samvinnustund sjálfboðaliða á bókasafninu