Tenglar

8. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Bókasafnið á Reykhólum opið tvisvar í viku

Núna um áramótin tók Hrefna Jónsdóttir við starfi bókavarðar á Héraðsbókasafni Reykhólahrepps í skólanum á Reykhólum. Síðustu misserin hefur Harpa Eiríksdóttir gegnt því starfi en Sigmundur Már Atlason hljóp í skarðið frá því í haust og til áramóta. Harpa kom heim um hátíðarnar og setti Hrefnu inn í starfið en er nú aftur á förum til að ljúka námi sínu í ferðamálafræðum í Öxnafurðu (Oxford) á Englandi.

 

Í vetur er bókasafnið á Reykhólum opið á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-19. Það er til húsa í gamla leikfimisalnum í Reykhólaskóla.

 

Sjá einnig:

04.01.2013 Fjöldi nýrra bóka á bókasafninu á Reykhólum

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31