20. september 2012 |
Bólusetning gegn inflúensu og lungnabólgu
Bóluefni gegn árlegri inflúensu er komið og bólusetning hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum. Jafnframt er minnt á bólusetningu gegn lungnabólgubakteríu, sem ráðlögð er áhættuhópum á ákveðnu árabili.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) í Búðardal og á Reykhólum.
► Heilbrigðisstofnun Vesturlands