Tenglar

14. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

Bólusetning gegn inflúensu og lungnabólgubakteríum

Árleg bólusetning gegn inflúensu er að hefjast á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Búðardal og á Reykhólum. Sóttvarnalæknir mælir með inflúensubólusetningu fyrir neðantalda forgangshópa. Þeim stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð.

 

Forgangshóparnir eru þessir:

  • Allir 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Þungaðar konur.

 

Jafnframt vill starfsfólk heilsugæslunnar í Búðardal og á Reykhólum vekja athygli á bólusetningu gegn lungnabólgubakteríum fyrir 60 ára og eldri.

 

  • Heilsugæslustöðin á Reykhólum er opin mánudaga kl. 10-16 og fimmtudaga kl. 13-15, sími 432 1460.
  • Heilsugæslustöðin í Búðardal er opin virka daga kl. 9-12 og 13-16, sími 432 1450.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31