27. júní 2012 |
Borð á sveitamarkaðinum og heimboð í súpu
Dagskrá Reykhóladaga 2012 er nánast fullfrágengin og verður birt hér á vefnum á næstu dögum. Fólk sem vill bjóða gestum í súpu er beðið að skrá sig sem fyrst. Þeir sem vilja fá borð á sveitamarkaðinum þurfa að hafa samband fyrir 20. júlí. Reykhóladagarnir verða að þessu sinni 26.-29. júlí eða frá fimmtudegi og fram á sunnudag.
Heimboðin í súpu verða föstudag og laugardag milli kl. 11.30 og 13. Allir sem bjóða heim fá skálar og skeiðar.
Sveitamarkaðurinn verður í borðsal Reykhólaskóla á laugardeginum kl. 13-16.30. Ekki þarf að borga fyrir að fá þar borð. Takmarkaður fjöldi borða í boði.
Þessar skráningar eins og allar aðrar varðandi Reykhóladaga eru hjá Hörpu í síma 894 1011 og netfanginu info@reykholar.is.