20. desember 2012 |
Bráðum koma blessuð jólin
Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands tók sig saman um daginn, setti upp viðeigandi húfur og söng jólalag, öllu heldur lag sem sungið er í aðdraganda jóla, og setti inn á YouTube. Söngnum fylgir þessi kveðja: Krabbameinsfélag Íslands óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir velvild og stuðning á árinu sem er að líða.
Meðal aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands er Krabbameinsfélag Breiðfirðinga. Formaður þess er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu II í Reykhólasveit.
► Lagið á YouTube er að finna hér