19. ágúst 2011 |
Bragaþing í Stykkishólmi
Bragaþing - landsmót hagyrðinga - verður haldið á Hótel Stykkishólmi laugardaginn 3. september. Borðhaldið hefst kl. 20 en veislustjóri verður hinn góðkunni Gísli Einarsson fréttamaður. Mótsgestir skrái sig sem fyrst hjá Hermanni Jóhannessyni í síma 866 9000 / 434 7765 eða Sigrúnu Haraldsdóttur í síma 824 5311. Þeir sem vilja gistingu á hótelinu panti hana í netpósti eða í síma 430 2100.
Sjá nánar hér (pdf) á vef Breiðfirðingafélagsins.