19. janúar 2012 |
Breiðfirðingafélagið: Árshátíð á þorra
Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð við Faxafen á laugardagskvöld. Veislustjóri verður Sigurður Jökulsson á Vatni. Sýndir verða þjóðdansar og hljómsveitin Klassík (Haukur Ingibergsson & Co.) leikur fyrir dansi fram á nótt.
Nánari upplýsingar á vef Breiðfirðingafélagsins.