11. maí 2016 |
Breiðfirðingur í Hólabúð
Nokkur eintök af nýútkomnum Breiðfirðingi eru komin til sölu í Hólabúð á Reykhólum. Þetta er 64. árgangur Breiðfirðings og annar árgangurinn undir ritstjórn Svavars Gestssonar eftir að ritið var vakið af nokkrum dvala. Hefti þetta er hin veglegasta bók, á þriðja hundrað síður með fjölda mynda.
Hér er að finna ítarlega umfjöllun um efni Breiðfirðings 2016
Útgefandi er Breiðfirðingafélagið.