Tenglar

25. desember 2015 |

Breiðfirskar raddir - mannlíf í Flateyjarhreppi

Ólína í Læknishúsi við afgreiðslu í pósthúsinu í Flatey sumarið 2007. Ljósm. hþm.
Ólína í Læknishúsi við afgreiðslu í pósthúsinu í Flatey sumarið 2007. Ljósm. hþm.

Útvarpsþáttur um lífið í Flateyjarhreppi, æskuna, félagslífið og fólkið, verður á Rás eitt klukkan 14 á morgun, annan dag jóla. Þáttinn gerði Heiðrún Eva Konráðsdóttir, ung kona af breiðfirskum ættum. Hún er sagnfræðingur að mennt en hefur einnig lokið meistaraprófi í hagnýtri menningarmiðlun.

 

Þáttinn vann Heiðrún Eva upp úr lokaverkefni sínu í hagnýtri menningarmiðlun árið 2010. Fyrir það verkefni tók hún viðtöl við um 20 manns í Flateyjarhreppi. Þar af koma níu fram í þættinum, en áður hafði hún rætt við tíu manns sem bjuggu í Flatey.

 

„Það var ómetanlegt að fá að heimsækja og ræða við allt þetta fólk um lífið í eyjunum,“ segir Heiðrún Eva. „Þetta eru dýrmætar heimildir um mannlíf í Flateyjarhreppi.

 

Myndina sem hér fylgir tók hþm í Flatey snemma í ágúst 2007. Þar er Ólína J. Jónsdóttir í Læknishúsi að afgreiða þýskt ferðafólk í litla pósthúsinu sem þá var enn við lýði í Flatey.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31