19. júní 2010 |
Breiðfirskir bátadagar 2010: Skráning nauðsynleg
Eins og hér hefur komið fram verða Breiðfirskir bátadagar haldnir þriðja sumarið í röð fyrstu helgina í júlí, föstudag til sunnudags 2.-4. júlí. Að þessu sinni er nýmæli vegna öryggismála að nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig fyrirfram og vel tímanlega. Koma þarf fram nafn báts, nafn formanns og fjöldi farþega í bát. Skráningin fer fram í netpósti hjá Hjalta Hafþórssyni.
Ítarlegar upplýsingar um siglingaleið og annað sem máli skiptir er að finna hér á vef Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum.
Sjá einnig:
rhol 26.05.2010 Bátadagar á Reykhólum fyrstu helgina í júlí
Myndasyrpa frá Breiðfirskum bátadögum 2009.