Tenglar

3. september 2014 | vefstjori@reykholar.is

Breyting á leyfðum útivistartíma barna og unglinga

Börn að leik. Rómversk marmaralágmynd frá 2. öld. Wikipedia.
Börn að leik. Rómversk marmaralágmynd frá 2. öld. Wikipedia.

Skrifstofa Reykhólahrepps minnir á, að leyfilegur útivistartími barna og unglinga tók breytingum núna um mánaðamótin. Frá þeim tíma mega tólf ára börn og yngri vera úti til kl. 20 en þrettán til sextán ára unglingar mega vera úti til kl. 22. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

 

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn, sem er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

 

Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31