9. febrúar 2010 |
Breyting á símsvörun heilsugæslulækna
Samræmd símsvörun heilsugæslulækna á vakt á Heilbrigðisstofnun Vesturlands tekur gildi að morgni 15. febrúar eða á mánudaginn kemur. Allir íbúar á Vesturlandi, Ströndum og í Húnaþingi nota þá sama símanúmer. Númerið er 112 allan sólarhringinn ef ná þarf sambandi við heilsugæslulækni á vakt. Almennar tímapantanir og önnur símaþjónusta verða aftur á móti með óbreyttum hætti þannig að hringt er í skiptiborðið (á Heilsugæslustöðinni í Búðardal í s. 434 1113 eða 434 1414).
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórði Ingólfssyni, yfirlækni í Búðardal.