30. ágúst 2017 | Sveinn Ragnarsson
Breytingar á útgefnum fjallskilaseðli
Fjallskilanefnd kom saman þann 29. ágúst 2017 vegna athugasemda sem gerðar höfðu verið á útgefnum fjallskilaseðli. Eftirfarandi breytingar voru samþykktar á fundinum:
1. Réttað verður tvisvar í Króksfjarðarnesi, 16. og 23. sept. Réttarstjóri er Daníel Jónsson.
2. Leitarstjórar á svæði IV-B, Gufudalur Hofstaðir eru; Björgvin M. Hallgrímsson og Styrmir Sæmundsson.
3. Leitarstjórar í Djúpinu eru; Bergur Þrastarson, Styrmir Sæmundsson og Tómas Sigurgeirsson.
Fjallskilanefnd.