6. september 2016 |
Breyttur fundartími hjá sveitarstjórn
Fundur í sveitarstjórn Reykhólahrepps, sem haldinn verður á fimmtudag, 8. september, hefst kl. 18 en ekki kl. 16.30 eins og venja er. Seinkunin er vegna fundar í grunnskólanum.
Dagskrá fundarins má finna hér og í reitnum Tilkynningar neðst til hægri á vefnum.
Sveitarstjórnarfundir eru opnir almenningi til áheyrnar, nema í sérstökum undantekningatilvikum þegar þeim er lokað meðan trúnaðarmál eru til umræðu og afgreiðslu.