8. nóvember 2009 |
Breyttur messutími og kaffi á kirkjuloftinu
Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur messar á Reykhólum í dag á öðrum tíma en venjulega eða kl. 16. Kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn en Svavar Sigurðsson leikur á orgelið. Fermingarbörnin taka þátt í athöfninni. Eftir messu er kaffi á kirkjuloftinu.