25. ágúst 2016 | Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Breyttur opnartími Grettislaugar í vetur, nýr forstöðumaður.
Sanja Bek hefur verið ráðin forstöðumaður Grettislaugar á Reykhólum. Sanja starfaði sem sundlaugarvörður í lauginni í sumar.
Í vetur, frá 1. september, verður laugin opin á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 16-20, á laugardögum 14-18, en lokuð á miðvikudögum og sunnudögum.
Mæja, fimmtudagur 25 gst kl: 16:49
Ahh hvað ég er fegin, verum nú dugleg við að æfa hana í Íslensku og munum að hún er sérmenntuð í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja og matsölustaða. Það sem dulgegt fólk vill er góð vinna og fjölbreytt verkefni.