25. september 2013 | vefstjori@reykholar.is
Breyttur tími á bókasafninu í vetur
Héraðsbókasafnið á Reykhólum er lokað þessa viku en eftir helgina gengur vetrartími í garð. Frá og með næsta mánudegi verður safnið opið á mánudögum kl. 15-17 og miðvikudögum kl. 15-16. Indíana Ólafsdóttir mun sjá um safnið í vetur en Harpa Eiríksdóttir bókavörður er farin utan til náms. Óskir um bókakaup skal þó senda Hörpu í netfangið info@reykholar.is.