21. apríl 2015 |
Breyttur tími í Grettislaug
Vegna árshátíðar starfsfólks Reykhólahrepps verður Grettislaug á Reykhólum opin kl. 16-18.30 á morgun, miðvikudag, en ekki kl. 16-20 eins og venjulega. Á fimmtudag, sumardaginn fyrsta, verður laugin opin kl. 16-21. Minnt er á, að þeir sem taka þátt í Fjölskyldudeginum fá frítt í sund milli kl. 17 og 19.