2. október 2010 |
Bridgenámskeið og síðan spilakvöld á Reykhólum
Nokkur næstu þriðjudagskvöld verður námskeið í bridge í íþróttahúsinu á Reykhólum og hefst spilamennskan kl. 19.30. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Þessi kvöld eru ætluð jafnt byrjendum og til upprifjunar á gamalli kunnáttu. Stefnt er að því að halda síðan spilakvöld á sama tíma þegar kemur fram á veturinn en þau verða auglýst síðar. Nánari upplýsingar gefur Eyvi í Hólakaupum, bæði á staðnum þegar hann er að vinna og í síma 434 7890 á afgreiðslutíma.
Fyrstu skrefin í bridge eru ekki mjög flókin þó að æfingin og reynslan skapi vissulega meistarann.