13. október 2013 | vefstjori@reykholar.is
Bridstíðin að hefjast - hverjir vilja vera með?
Bridsið hefst í kvöld kl. 19.30 í Slysavarnahúsinu á Hólmavík og verður á sunnudögum til vors. Þrír til fjórir spilarar sunnan Þröskulda (úr Reykhólahreppi og Saurbæ) taka þátt í spilamennskunni í vetur. Ef áhugi er á samfloti eða bara áhugi almennt að vera með á þessari spilatíð, þá endilega hafið samband við Eyva kaupmann á Reykhólum (863 2341).