6. september 2013 | vefstjori@reykholar.is
„Brjáluð ást“ á Laugum í Sælingsdal
Fjölbreytt dagskrá með yfirskriftinni „Brjáluð ást“ verður á Laugum í Sælingsdal á morgun, laugardag, helguð Laxdæla sögu en þó ekki síst þeim Guðrúnu Ósvífursdóttur og Bolla Þorleikssyni ef að líkum lætur. Fagnað verður samstarfsverkefni þriggja norrænna leikhúsa og heimamanna í Dölum um Laxdælu. Dagskráin hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur allan daginn og lýkur með harmonikuballi fyrir unga sem aldna.
Dagskrána í einstökum atriðum og aðrar upplýsingar sem máli skipta má sjá á myndunum sem hér fylgja.