Tenglar

17. júní 2011 |

Brúðkaup og opið hús á Reykhólum

Ólafía og Eyvi í versluninni Hólakaupum verða gefin saman í hjónaband í Reykhólakirkju kl. 17 á morgun, laugardag. Frá klukkan 22 verða þau með opið hús í íþróttahúsinu þar sem vinir þeirra og kunningjar og viðskiptavinir eru velkomnir - á þeim tíma og eftir það. Þar verða í boði léttar bjórveitingar (meðan birgðir endast) en öllum er frjálst að koma með sína eigin drykki. Í ljósi hins mjög langa sambands Ólafíu og Eyva er orðið tímabært að gefast saman með formlegum hætti og þó fyrr hefði verið. Raunar er uppgefin ástæða fyrir þessu tilstandi núna sú, að þau eru að halda (dálítið síðbúið) upp á stórafmæli beggja.

 

Ólafía varð þrítug núna í mars og Eyvi varð fertugur í sama mánuði á síðasta ári. Þau hafa „verið saman“ í nærri tólf ár. Börn þeirra eru fimm. Þar af eiga þau tvö saman, Söru sjö ára og Sigurvin fimm ára. Eyvi átti fyrir Lovísu sem er tvítug, Karen sem er átján ára og Bjarna sem er þrettán ára.

 

Hjónaleysin vonast til þess að sem flestir komi og samfagni þeim.

 

Vígsluna annast sr. Pétur Þorsteinsson, gamall og góður vinur þeirra beggja hjá Óháða söfnuðinum.


05.05.2010  Nýir eigendur Hólakaupa á Reykhólum
 

Athugasemdir

Hjalti Hafþórsson, laugardagur 18 jn kl: 21:26

Innilega til hamingju með daginn.
- Hjalti og Inga.

Eyvindur, mnudagur 20 jn kl: 12:42

þökkum öllum sem glöddu okkur á þessum degi, hjónakveðjur Eyvi og Ólafía

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31