Búið að fastsetja tímana í Grettislaug
Eins og hér kom fram tók nýr forstöðumaður Grettislaugar á Reykhólum til starfa fyrir helgina. Seint og illa gekk að manna laugarvörsluna og jafnvel voru horfur á því að laugin yrði lokuð um lengri eða skemmri tíma. Núna er búið að ákveða hvaða daga og á hvaða tímum laugin verður opin í vetur, eins og fram kemur hér fyrir neðan. Um næstu helgi, réttahelgina stóru, verður laugin hins vegar opin á skjön við hið fasta tímaplan eins og venja hefur verið á liðnum árum. Á laugardag verður hún opin kl. 16-20 (ekki kl. 14-18) og á sunnudag kl. 14-18 (annars lokuð á sunnudögum).
Í vetur verður Grettislaug að öðru leyti opin á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 16-20, á laugardögum kl. 14-18, en lokuð á miðvikudögum og sunnudögum.