18. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Búið að opna í Bjarkalundi
Hótel Bjarkalundur.
Fyrir helgina var opnað í Hótel Bjarkalundi við Berufjarðarvatn í Reykhólasveit. Árni Sigurpálsson, sem rekið hefur staðinn í félagi við aðra í tæpan áratug, hefur keypt hlut meðeigenda sinna. Hann segir að reksturinn verði með sama sniði og verið hefur undanfarin ár.