Tenglar

26. mars 2015 |

Búið að opna verslunina á Reykhólum

Ása, Inga Birna og Reynir Þór.
Ása, Inga Birna og Reynir Þór.
1 af 3

Hólabúð á Reykhólum var opnuð kl. 13 í dag og lauk þar með verslunarleysi í héraðinu sem staðið hefur frá áramótum. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri mætti á slaginu þegar opnað var og færði verslunareigendunum Ásu Fossdal og Reyni Þór Róbertssyni blómvönd og óskaði þeim velfarnaðar. Í tilefni dagsins blakti íslenski fáninn við hún bæði hjá búðinni og við Stjórnsýsluhúsið á Reykhólum. Við búðina var líka hennar fáni, sem betur má sjá á mynd nr. 3.

 

Fyrst um sinn verður Hólabúð opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16 en lokað verður á sunnudögum. Afgreiðslutíminn verður svo endurskoðaður með vorinu.

 

Á Facebook-síðu Hólabúðar má fylgjast með tilboðum og öðru sem þar er fréttnæmt hverju sinni.

 

Athugasemdir

Ingi B Jónasson, fimmtudagur 26 mars kl: 17:29

til hamingju með búðina ,næst þarf að huga að stað þar sem allir ungir sem gamlir geta komið saman spjallað drukkið kaffi ,gos eða ölkollu og jafnvel fleira

Solla Magg, fstudagur 27 mars kl: 17:55

Hjartanlegar hamingjuóskir með opnunina á Hólabúð ..

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31