19. janúar 2015 |
Búið að panta miða á blótið?
Á það skal minnt að frestur til að panta miða á þorrablótið, sem haldið verður í íþróttahúsinu á Reykhólum á laugardagskvöld, er að renna út. Miðapantanir hjá Guðrúnu í síma 426 8625 eða 865 5237 og Lóu í síma 434 7715 eða 869 8713.
Lionsfélagar sjá um matinn en síðan leikur KK-bandið fyrir dansi. Aldurstakmark er 18 ár. Húsið verður opnað kl. 20 en borðhaldið hefst kl. 20.30.