6. maí 2015 |
Búið að panta röntgenlesara í Búðardal
Röntgenlesari fyrir Heilsugæslustöðina í Búðardal var pantaður á mánudagsmorgun, en þá hafði safnast nægilegt fé til að kaupa hann, skv. upplýsingum frá Höllu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Hún birti á Facebook-síðu sinni á miðvikudaginn í síðustu viku ákall vegna fjársöfnunar til kaupa á þessu tæki.