Búvélasafnið á Grund fær styrk frá Menningarráði
Búvélasafnið á Grund í Reykhólasveit hlaut 400.000 króna styrk frá Menningarráði Vestfjarða við fyrri úthlutun 2008. Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða hlaut kr. 250.000 og myndlistarverkefnið Hólar og Dalir (Björn Samúelsson) kr. 150.000. Styrkirnir voru afhentir á Hólmavík í gær, sumardaginn fyrsta. Samtals voru veittir styrkir til 47 verkefna að þessu sinni, samtals að upphæð 17,6 milljónir króna, en 110 umsóknir bárust. Hæsta styrkinn fékk kvikmyndafyrirtækið Í einni sæng til verkefnisins Eitur í æðum, eina og hálfa milljón króna.
Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu á Hólmavík og um leið var opnað Þróunarsetur að Höfðagötu 3 á Hólmavík, þar sem ýmsar stofnanir og fyrirtæki hafa hreiðrað um sig með skrifstofuaðstöðu, auk þess sem námsver er í húsinu. Við athöfnina voru flutt erindi í tilefni af úthlutun Menningarráðsins og opnun Þróunarsetursins, auk þess sem boðið var upp á kaffiveitingar.
Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða og Gunnar Hallsson formaður Menningarráðs kynntu niðurstöður varðandi styrkveitingar, en einstakir styrkir voru á bilinu 100 þúsund til 1,5 milljón króna. Menningaratriði voru auk þess á dagskránni, atriði og tónlist úr Dýrunum í Hálsaskógi sem sett var upp í vetur í samvinnu Tónskólans og Grunnskólans á Hólmavík og Leikfélags Hólmavíkur. Hægt er að kynna sér starfsemi Menningarráðs Vestfjarða nánar á vefnum vestfirskmenning.is.
Eftirtalin verkefni fengu styrki frá Menningarráði Vestfjarða að þessu sinni:
Kr. 1.500.000
- Eitur í æðum (Í einni sæng ehf.)
Kr. 1.000.000
- Kvikmyndaefni fyrir Skrímslasýningu (Félag áhugamanna um Skrímslasetur)
Kr. 750.000
- Hönnun Kistunnar í Trékyllisvík (Strandagaldur ses.)
- Búskapur á Ströndum - upptökur og miðlun á sjónrænum heimildum (Sauðfjársetur á Ströndum)
Kr. 700.000
- Leiklistarhátíðin Act alone 2008 (Kómedíuleikhúsið)
- Afmæli Tónlistarfélags Ísafjarðar - Tónlistardagurinn mikli (Tónlistarfélag Ísafjarðar)
Kr. 500.000
- Stuttmyndakeppni á Ísafirði (Úlfur Þór Úlfarsson)
- Skjaldborg08 (Geir Gestsson)
- Tónlistarhátíðin og masterklassarnir Við Djúpið 2008 (Félagið Við Djúpið)
- Sjóræningjar á plani (Leikfélag Patreksfjarðar)
- Uppbygging Vatnsfjarðar sem minjastaðar (Súðavíkurhreppur)
- Listviðburðir í Edinborgarhúsi (Edinborgarhúsið)
Kr. 400.000
- Grásleppu- og nytjasetur Stranda á Drangsnesi (Félag áhugafólks um stofnun Grásleppuseturs á Drangsnesi)
- Uppsetning Lister-vélasafns (Sandborg ehf.)
- Steinshús (Steinshús, sjálfseignarstofnun)
- Búvélasafnið á Grund í Reykhólasveit (Unnsteinn H. Ólafsson og félagar)
- Hafstraumar 2008 (Hafstraumar)
- Súgandi - heimildamynd (Ljósop ehf.)
- Ljósmyndasafn Vestur-Barðastrandarsýslu og sumarsýningin Atvinnulíf liðinnar aldar (Ljósmyndasafn Vestur-Barðastrandarsýslu)
- Sumarið í Hömrum 2008 (Tónlistarfélag Ísafjarðar)
Kr. 300.000
- Saga frumkvöðla í Bolungarvík (Við Djúpið ehf.)
- Ljóðlist á myndrænan hátt (Eva Ísleifsdóttir, Monika Frycova, Jón Þórðarson og Gallerie Dynjandi)
- Leitin að Gísla: Heimildamynd um slóðir Gísla sögu Súrssonar (Þjóðfræðistofa)
- Steinöld - leiksýning (Kómedíuleikhúsið)
- Þjóðsagnadagskrá (Leikfélag Hólmavíkur)
- Breaking the barriers - Alþjóðleg heimildamyndahátíð og ráðstefna á Ísafirði (Safn Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri)
- Steinn Steinarr - málþing og útgáfa myndskreytts ljóðaheftis (Gagnvegur)
Kr. 250.000
- Hér býr ánægjan - Sýning um skáldkonuna Höllu á Laugabóli (Guðfinna M. Hreiðarsdóttir)
- Kvæðaperlur úr Kaldrananeshreppi (Bryggjuhátíð á Drangsnesi, Kaldrananeshreppur)
- Kaþólskir Vestfirðir í fortíð og nútíð (Vestfirðir á miðöldum)
- Saga „Þorpsins" Patreksfjarðar í máli og myndum (Kaffi- og veitingastofan Þorpið)
- Sauðfé í sögu þjóðar. Þýðing sýningartexta á ensku og þýsku (Sauðfjársetur á Ströndum)
- Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða (Skiptá, félag áhugafólks um menningu og sögu)
- Gísla saga Súrssonar í myndum (Marsibil G. Kristjánsdóttir)
Kr. 200.000
- Steinn Steinarr - 100 ára minning (Félag um Snjáfjallasetur)
- Kaldalón og Kaldalóns - sýning á Ísafirði (Félag um Snjáfjallasetur)
- Merkingar á menningarminjum í Hveravík við Steingrímsfjörð (Strandagaldur ses.)
- Fólkið úr fjöllunum (Vagna Sólveig Vagnsdóttir)
- Strandir og Strandamenn í bókmenntum (Héraðsbókasafn Strandasýslu)
- Leiklistarnámskeið fyrir unglinga (Ylfa Mist Helgadóttir)
- Búningasafn og áhaldasafn Leikfélags Hólmavíkur (Leikfélag Hólmavíkur)
- Ferð án fyrirheits (Sögur útgáfa)
Kr. 150.000
- Hólar og Dalir - myndlistarverkefni (Björn Samúelsson)
Kr. 100.000
- Þátttaka Hátíðarkórs T. Í. í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands (Tónlistarskóli Ísafjarðar)
- Flutningur Jóhannesarpassíunnar eftir Bach í „ör"útgáfu í Ísafjarðarkirkju á föstudaginn langa (Tónlistarskóli Ísafjarðar)
- Leikföng, skart og klæði fyrr á dögum (Þjóðbúningafélag Vestfjarða)
- Uppsetning á sýningu á Harmonikkusafni Ásgeirs S. Sigurðssonar (Byggðasafn Vestfjarða)